GSÍPar á næstu vann VIKING-deildina hjá GM
Úrslit liggja fyrir í innanfélagsmótaröðum Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Wenche Follaug og Jónas Yamak unnu VITAgolf-mótaröðina og liðið Par á næstu VIKING-deildina.

Par á næstu lagði Snúðana 2,5–0,5 í úrslitaleik VIKING-deildar Golfklúbbs Mosfellsbæjar í sumar. Kóróna varð í þriðja sæti eftir sigur á Stutt í grínið og þessi fjögur lið halda sæti sínu í deildinni á næsta ári án umspils.
Í VITAgolf-mótaröðinni sigraði Wenche Follaug í kvennaflokki og Jónas Yamak í karlaflokki. Í báðum flokkum munaði aðeins þremur stigum á sigurvegaranum og þeim sem varð annar. Þorsteinn Hallgrímsson vann Titleist-holukeppnina eftir sigur á Eyþóri Ágústi Kristjánssyni í úrslitum og Elín Gróa Karlsdóttir hafði betur gegn Jónu Sigríði Halldórsdóttur í kvennaflokki.
Verðlaunin verða afhent á aðalfundi GM í byrjun desember.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Jon Rahm laus undan LIV og má semja við hvaða mótaröð sem er
- Golf á Íslandi · GSÍNýtt
GSÍ tekur við tilnefningum um sjálfboðaliða ársins til 28. október
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur lék á 66 höggum og fór upp í 8. sæti í Álaborg
- Golf á Íslandi · VellirnirNýtt
Haukur Óskarsson lék alla 67 golfvelli GSÍ á einu sumri
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Hye-Jin Choi með þriggja högga forystu eftir fyrsta hring í Sjanghæ
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn býður leikskólabörnum á Stubbagolf í vetur
