Persónuvernd
Hér segjum við hreint út hvaða upplýsingum við söfnum um heimsóknir og lesendur, til hvers og hvernig þú ræður hvað er skráð.
Síðast uppfært 9. október 2026
Í stuttu máli
- Allar heimsóknir eru taldar án vafrakaka: síða, tími, vefurinn sem vísaði á okkur og tegund tækis, vafra og stýrikerfis. Engar IP-tölur eða auðkenni fylgja.
- Ef þú leyfir það notum við líka Google Analytics, sem setur vafrakökur og gefur okkur nánari mynd af umferðinni, svo sem land, endurkomur og tíma á síðum. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er.
- Persónuupplýsingarnar sem við biðjum lesendur um eru netfang, þegar þeir skrá sig á fréttabréfið eða biðja um póst um kylfingana sem þeir fylgja.
- Við notum hvorki auglýsingarakningu, Facebook Pixel né önnur auglýsingatól, og við seljum aldrei upplýsingar um lesendur.
Hver ber ábyrgð
Golfið (golfid.is), sem Pétur Örn Johnson gefur út, ber ábyrgð á þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér. Spurningar og beiðnir má senda á ritstjorn@golfid.is. Vinnslan fer fram samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) og lögum nr. 70/2022 um fjarskipti, sem gilda um vafrakökur.
Vafrakökur og Google Analytics
Þegar þú kemur fyrst á vefinn spyrjum við hvort þú leyfir Google Analytics. Ekkert er sent til Google og engar vafrakökur eru settar fyrr en þú smellir á „Leyfa“. Ef þú smellir á „Hafna“ virkar vefurinn nákvæmlega eins.
Ef þú leyfir það skráir Google Analytics meðal annars hvaða síður þú skoðar og hve lengi, hvaðan þú komst, smelli á tengla út af vefnum, hve langt þú flettir niður, leit á vefnum, land og borg (áætlað út frá IP-tölu), tungumál, tegund tækis, vafra og stýrikerfi, skjástærð og hvort þú hafir komið áður. Google Analytics geymir ekki IP-tölur. Við notum þetta eingöngu til að skilja hvaða efni lesendur vilja og hvernig vefurinn nýtist.
- Lagagrundvöllur: samþykki þitt. Þú getur dregið það til baka hvenær sem er undir Vafrakökustillingar (líka neðst á hverri síðu). Þá hættir mælingin og vafrakökum Google Analytics er eytt.
- Vafrakökur:
_gaog_ga_*, sem greina á milli vafra með handahófskenndu númeri. Þær eru virkar í allt að 2 ár. Valið þitt sjálft er geymt í vafranum þínum í 12 mánuði, og þá spyrjum við aftur. - Vinnsluaðili: Google Ireland Limited vinnur gögnin fyrir okkur samkvæmt vinnslusamningi (Google Ads Data Processing Terms). Gögnin kunna að fara til Google LLC í Bandaríkjunum, sem er vottað samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework).
- Geymsla: nákvæm gögn í Google Analytics eru geymd í 14 mánuði og eytt eftir það.
- Engar auglýsingar eru tengdar mælingunni og Google fær ekki að nota gögnin til að beina auglýsingum að þér.
Heimsóknatalning án vafrakaka
Til að vita hvað er lesið, líka hjá þeim sem hafna Google Analytics, skráum við á okkar eigin netþjóni, þegar síða er opnuð: dagsetningu og klukkustund, slóð síðunnar, heiti vefsins sem vísaði á hana (til dæmis google.com eða facebook.com) eða heiti herferðar (utm-merki í hlekk), og flokk tækis (sími, spjaldtölva eða tölva), vafra, stýrikerfis og tungumáls vafrans. Þegar smellt er á tengil til seljanda golfferða, verslunar eða golfhermis skráum við dagsetningu, seljandann, ferðina eða vöruna og síðuna sem smellt var á. Þegar leitað er á vefnum skráum við leitarorðið og hve margar niðurstöður fundust, svo við sjáum hvaða efni lesendur sakna. Netföng og langar talnarunur, eins og símanúmer, eru faldar áður en leitarorðið er vistað.
Engar vafrakökur, IP-tölur eða auðkenni fylgja, svo ekki er hægt að tengja færslurnar við einstakling eða sjá hvort sami lesandi kemur aftur. Lagagrundvöllurinn er lögmætir hagsmunir okkar af því að vita hvernig vefurinn er notaður. Gögnin eru geymd á netþjóni hýsingaraðilans, utan þess svæðis sem er opið á netinu, og aðeins notuð í samantektir.
Tenglar til seljenda bera merki (utm_source=golfid.is) svo seljandinn sjái að þú komst frá Golfinu. Á vef seljandans gildir persónuverndarstefna hans.
Fréttabréfið
Þegar þú skráir þig á fréttabréfið geymum við netfangið þitt, dagsetningu og tíma skráningar og síðuna sem þú skráðir þig á. Við notum netfangið eingöngu til að senda þér fréttabréf Golfsins.
- Lagagrundvöllur: samþykki þitt, sem þú veitir með skráningunni og getur dregið til baka hvenær sem er.
- Geymsla: skráningarnar eru geymdar á netþjóni hýsingaraðila okkar, utan þess svæðis sem er opið á netinu, og hjá póstþjónustunni sem sendir bréfin, þar til þú afskráir þig.
- Útsendingar: fréttabréfið er sent með póstþjónustunni Brevo (Sendinblue SAS í Frakklandi), sem vinnur netfangið fyrir okkur sem vinnsluaðili og notar það ekki í öðrum tilgangi. Brevo skráir hvort bréf er opnað og hvort smellt er á hlekki í því, svo við sjáum hvaða efni fellur í kramið. Hvert bréf er með hlekk til að afskrá sig.
- Afskráning: smelltu á afskráningarhlekkinn neðst í hverju bréfi eða sendu okkur línu á ritstjorn@golfid.is og við eyðum netfanginu þínu.
Póstur um kylfinga sem þú fylgir
Ef þú biður um póst þegar kylfingarnir sem þú fylgir keppa geymum við netfangið þitt, hvaða kylfingum þú fylgir og dagsetningu skráningar. Við notum þetta eingöngu til að senda þér stuttan póst með stöðu þeirra og nýjum fréttum af þeim.
- Lagagrundvöllur: samþykki þitt, sem þú veitir með skráningunni og getur dregið til baka hvenær sem er.
- Uppfærslur: þegar þú byrjar eða hættir að fylgja kylfingi í sama vafra er listinn uppfærður hjá okkur svo pósturinn passi.
- Geymsla og útsendingar: eins og fréttabréfið: á netþjóni hýsingaraðila okkar, utan þess svæðis sem er opið á netinu, og hjá Brevo, sem sendir póstinn fyrir okkur.
- Afskráning: smelltu á „Hætta að fá þessa pósta“ neðst í hverjum pósti eða á „Hætta að fá póst“ á vefnum, eða sendu okkur línu á ritstjorn@golfid.is. Þá eyðum við netfanginu af þessum lista.
Vefþjónninn
Eins og á flestum vefjum skráir vefþjónn hýsingaraðilans okkar (hosting.com) tæknilegar upplýsingar í aðgangsskrár, meðal annars IP-tölu, tíma, síðuna sem beðið var um og tegund vafra. Þær eru nauðsynlegar fyrir öryggi og rekstur vefsins og eru geymdar í takmarkaðan tíma. Við notum þær til að verjast misnotkun og leysa tæknileg vandamál, ekki til að greina einstaka lesendur.
Það sem vistast í þínum vafra
Sumir eiginleikar vefsins muna stillingar með því að vista þær í vafranum þínum (localStorage). Þessar upplýsingar eru ekki sendar til okkar, nema listinn yfir kylfinga sem þú fylgir ef þú hefur beðið um póst um þá (sjá hér að ofan):
- Kylfingar sem þú fylgir og völlurinn þinn, svo þú sjáir þeirra fréttir og veður, og netfangið sem þú gafst upp fyrir póstinn um kylfingana.
- Hvenær þú leist síðast við og hvaða fréttir þú hefur lesið, svo hægt sé að merkja nýjar fréttir.
- Svarið þitt um Google Analytics, svo við spyrjum ekki á hverri síðu.
Þú getur eytt þessu hvenær sem er með því að hreinsa vefgögn fyrir golfid.is í stillingum vafrans.
Efni frá öðrum vefjum
Sumt á síðunum er sótt beint frá öðrum aðilum. Þá fær viðkomandi aðili IP-tölu þína og upplýsingar um vafrann, eins og alltaf þegar efni er sótt á netið:
- Ljósmyndir í fréttum koma meðal annars frá Wikimedia Commons, Flickr, Golfsambandi Íslands og vefjum golfklúbba.
- Veðurspár koma frá Open-Meteo (open-meteo.com). Spárnar eru sóttar fyrir hnit golfvallanna, aldrei fyrir þína staðsetningu.
- Myndbönd eru felld inn frá YouTube um youtube-nocookie.com. YouTube vistar ekki upplýsingar um þig fyrr en þú spilar myndbandið, en þá gilda skilmálar Google.
- Kortagrunnurinn á kortunum kemur frá OpenStreetMap (openstreetmap.org).
- Google Analytics hleðst frá googletagmanager.com, en aðeins ef þú hefur leyft það.
Letrið og kortaforritið hýsum við sjálf. Hnappurinn til að deila á Facebook er venjulegur tengill: Facebook fær engar upplýsingar nema þú smellir á hann.
Ef þú hefur samband
Ef þú sendir okkur tölvupóst, til dæmis með ábendingu, geymum við hann eins lengi og þarf til að svara og fylgja málinu eftir.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum og draga samþykki þitt til baka. Sendu beiðni á ritstjorn@golfid.is og við svörum innan mánaðar. Athugaðu að talningin án vafrakaka inniheldur engin auðkenni, svo við getum ekki fundið færslur sem tengjast þér þar. Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig farið er með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar.
Breytingar
Ef við breytum því hvernig farið er með upplýsingar uppfærum við þessa síðu og dagsetninguna efst. Stærri breytingar sem snerta áskrifendur kynnum við í fréttabréfinu.