Fimmtudagur 15. októberSíðast uppfært 15. október · kl. 21:17
Golf á Íslandi · Klúbbarnir

Jarðvinnu við stækkun golfskála Keilis á að ljúka 15. nóvember

Framkvæmdir við stækkun golfskála Golfklúbbsins Keilis á Hvaleyrarvelli eru komnar á fullt skrið og stefnt er að því að jarðvinnu ljúki 15. nóvember.

Ritstjórn Golfsins7. október 2026 kl. 11:101 mín. lestur
Framkvæmdasvæðið við golfskála Keilis á Hvaleyrarvelli 6. október 2026, séð úr lofti. Ljósmynd: Golfklúbburinn Keilir
Framkvæmdasvæðið við golfskála Keilis á Hvaleyrarvelli 6. október 2026, séð úr lofti. Ljósmynd: Golfklúbburinn Keilir

Vinnuvélar eru nú á ferðinni við golfskálann á Hvaleyrarvelli og biður Golfklúbburinn Keilir félagsmenn og gesti að fara varlega nærri framkvæmdasvæðinu. Gert er ráð fyrir að jarðvinnu ljúki 15. nóvember og þá hefst uppsteypa viðbyggingarinnar. Þegar loka þarf stærri hluta svæðisins verður umferð gangandi og akandi færð norður fyrir skálann. Klúbburinn vinnur jafnframt að beinu streymi af framkvæmdasvæðinu svo félagsmenn geti fylgst með.

Þjónusta í skálanum var skert í byrjun október. Verslunin er opin með skrifstofunni kl. 8–16 og veitingasalan kl. 9–15 á virkum dögum. Golfbílar eru ekki leyfðir vegna aðstæðna á vellinum og verður það líklega þannig út tímabilið, en engin áform eru um að loka völlunum.

Golfklúbburinn KeilirHvaleyrarvöllurGolfskálar
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt