Föstudagur 16. októberSíðast uppfært 16. október · kl. 21:51
Golftól · Vallarforgjöf

Hver er vallarforgjöfin þín?

Vallarforgjöfin breytist eftir velli og teigum. Sláðu inn forgjöfina þína og tölurnar af skorkortinu – við reiknum afganginn eftir reglum WHS.

1 / 3Forgjöfin þín

Eins og hún stendur í GolfBox. Plúsforgjöf skráirðu með mínus, t.d. −1,5.

2 / 3Völlurinn og teigarnir

Vallarmat og vægi eru ólík eftir teigum og standa á skorkortinu og í GolfBox. Veldu völlinn til að fá parið.

3 / 3Hvernig er leikið?

Í mótum er leikforgjöfin hlutfall af vallarforgjöfinni.

Skormismunur hrings

Valfrjálst. Sláðu inn leiðrétt brúttóskor (hámark tvöfaldur skolli nettó á holu) og sjáðu skormismun hringsins.

högg
Formúlurnar
  • Vallarforgjöf = forgjöf × (vægi ÷ 113) + (vallarmat − par), námunduð að heilli tölu.
  • Leikforgjöf = vallarforgjöf × hlutfall leikformsins, námunduð að heilli tölu.
  • Á 9 holum er notaður helmingur forgjafarinnar og vallarmat og par 9 holnanna.
  • Skormismunur = (113 ÷ vægi) × (leiðrétt skor − vallarmat). Forgjöfin er meðaltal 8 bestu af 20 síðustu skormismunum.
Gott að vita

Vægið segir til um hve miklu erfiðari völlurinn er fyrir kylfing með um 20 í forgjöf en fyrir kylfing með 0. Völlur af hlutlausum erfiðleika hefur vægið 113.

Opinber forgjöf og skráning hringja er í GolfBox. Mótsstjórn getur notað önnur hlutföll; þá gilda mótsreglurnar. Tölur um alla velli landsins: Golfvellir.

Fleiri golftól