Föstudagur 16. októberSíðast uppfært 16. október · kl. 21:51
Golf á Íslandi · GSÍ

Golfið skilar samfélaginu rúmum 31 milljarði króna á ári

Ný greining bendir til þess að hver króna sem lögð er í golfíþróttina skili sér nær tvöfalt til baka – meðal annars í heilbrigðiskerfinu.

Ritstjórn Golfsins28. september 20263 mín. lestur
Golfvöllur Golfklúbbsins Vestarrs í Grundarfirði. Ljósmynd: Chr Grundo / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0
Golfvöllur Golfklúbbsins Vestarrs í Grundarfirði. Ljósmynd: Chr Grundo / Wikimedia Commons, CC BY-SA 4.0

Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er metið á 31,22 milljarða króna á ári. Þetta er niðurstaða nýrrar greiningar sem Golfsamband Íslands (GSÍ) vann ásamt KPMG og finnska íþróttavísindafélaginu (Finnish Society of Sport Sciences).

Í greiningunni var beitt SROI-aðferð (e. Social Return on Investment), sem metur í krónum hvaða áhrif tiltekin starfsemi hefur á heilsu, vellíðan og félagslega þátttöku fólks. Um 15,7 milljörðum króna er varið til golfíþróttarinnar á ári hverju og hún skilar samfélaginu um 31,2 milljörðum á móti, nær tvöfaldri þeirri upphæð.

„Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er upp á rúman 31 milljarð,“ sagði Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, í viðtali við RÚV.

Áætlað er að golfiðkun spari ríkinu um fjóra milljarða króna í heilbrigðiskostnaði. Kylfingar 19 ára og eldri hreyfðu sig að meðaltali í 310 mínútur á viku við golfiðkun frá maí til ágúst 2025, en fullorðnum er ráðlagt að hreyfa sig í 150–300 mínútur á viku. Að sögn GSÍ helst þátttakan í golfi sterk með hækkandi aldri.

GSÍRannsóknirLýðheilsa
Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Golf á Íslandi · Klúbbarnir

    Nesklúbburinn skipar nýja barna- og unglinganefnd

  2. Afrekskylfingar · Mótaraðirnar

    Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud