PGA TourDómari samþykkti fjármögnun LIV og leysti deildina undan samningum 19 kylfinga
Gjaldþrotadómari í New Jersey samþykkti á miðvikudag samkomulag LIV Golf og BC Partners. Lögmaður LIV kvartaði fyrir dómi undan DP World Tour og dómarinn sagði ummæli mótaraðarinnar vekja áhyggjur.

Með samkomulaginu fær LIV 300 milljónir dala í lánsfé og hlutafé. Það er forsenda þess að deildin geti starfað áfram þegar fjárframlög sádi-arabíska fjárfestingarsjóðsins PIF falla niður í lok tímabilsins. Michael B. Kaplan dómari tók fram að með þessu staðfesti hann hvorki endurskipulagningaráætlun né úrskurðaði um kröfur. Hann féllst líka á beiðni LIV um að losna undan samningum 19 kylfinga, þar á meðal Brysons DeChambeau og Dustins Johnson, en það er venjan í málum af þessu tagi.
Robert Fitzgerald, lögmaður LIV, sagði fyrir dómi að DP World Tour reyndi greinilega að trufla viðræður LIV við leikmenn og endurskipulagninguna sjálfa með því að útiloka kylfinga sem semdu við nýju deildina einmitt nú. Kaplan sagði að ummæli forsvarsmanna mótaraðarinnar vektu áhyggjur, samkvæmt Golf Channel.
Málið verður næst tekið fyrir 20. október. Leikmenn hafa frest til 25. október til að semja við LIV Golf 2.0, en BC Partners getur framlengt frestinn og ákveður sjálft hve marga kylfinga og hverja þarf til að af nýju deildinni verði.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Will Zalatoris í þriðju bakaðgerðina og keppir ekki árið 2027
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Ragnhildur höggi frá niðurskurðinum í Calatayud
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Jon Rahm laus undan LIV og má semja við hvaða mótaröð sem er
- Golf á Íslandi · GSÍNýtt
GSÍ tekur við tilnefningum um sjálfboðaliða ársins til 28. október
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur lék á 66 höggum og fór upp í 8. sæti í Álaborg
- Golf á Íslandi · VellirnirNýtt
Haukur Óskarsson lék alla 67 golfvelli GSÍ á einu sumri