DP World Tour hleypir engum LIV-kylfingi að árið 2027
Kylfingar sem semja við LIV Golf fyrir næsta tímabil fá ekki aðild að DP World Tour árið 2027. Það gæti kostað Tyrrell Hatton sæti í liði Evrópu í Ryder-bikarnum á Adare Manor.

Enginn kylfingur sem skráir sig til leiks í endurreistu LIV-deildinni fær aðild að DP World Tour árið 2027. Guy Kinnings, framkvæmdastjóri mótaraðarinnar, greindi frá þessu í viðtali við BBC Sport á mánudag.
„Leikmenn verða að velja,“ sagði Kinnings (í lauslegri þýðingu) og bætti við að þeir sem ekki vildu hlíta reglum mótaraðarinnar ættu ekki að sækjast eftir aðild að henni.
Í febrúar fengu átta LIV-kylfingar skilyrt leyfi til að halda keppnisrétti sínum á DP World Tour og keppa þar án þess að sæta sektum eða banni. Það fyrirkomulag fellur nú niður. Leikmenn þurfa að gefa upp hvar þeir ætla að leika þegar gengið er frá aðild fyrir næsta ár, og hver sá sem segist ekki ætla í LIV en fer þangað samt missir aðildina þegar í stað.
Aðeins kylfingar með aðild að DP World Tour geta leikið fyrir hönd Evrópu í Ryder-bikarnum, og næst verður keppt á Adare Manor á Írlandi í september 2027. Tyrrell Hatton, Victor Perez og Tom McKibbin eru allir með aðild að DP World Tour og samning við LIV. Hatton hefur verið í liði Evrópu í tveimur síðustu keppnum undir stjórn Lukes Donalds.
Jon Rahm hefur þegar hafnað nýju LIV-deildinni og búist er við að hann leiki á DP World Tour á næsta ári. Hvorki Joaquin Niemann né Thomas Pieters hafa keppnisrétt á DP World Tour. Þeir þyrftu að reyna fyrir sér á úrtökumótum eða semja um boðssæti á einstökum mótum.
LIV Golf er í greiðslustöðvun samkvæmt 11. kafla bandarískra gjaldþrotalaga og BC Partners hefur heitið allt að 300 milljónum dala til að endurreisa deildina fyrir árið 2027. Frestur leikmanna til að semja við nýju deildina rennur út 25. október. Samkvæmt The Independent hafa Laurie Canter, Adrian Meronk og David Puig, sem fengu skilyrt leyfi í ár, hins vegar frest fram til 16. nóvember til að svara DP World Tour.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn skipar nýja barna- og unglinganefnd
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Perla Sól fékk átta högg á 2. holu í Chapel Hill
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara 135,5 stigum frá keppnisrétti á LET þegar þrjú mót eru eftir
- 19. holan · HúmorNýtt
Orðabók golfvetrarins, frá vetrarflöt til hermaforgjafar
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur fékk fjóra skolla á síðustu sjö holunum í Álaborg
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud

