PGA TourJon Rahm hafnar nýju LIV-deildinni og verður ekki með árið 2027
Jon Rahm ætlar ekki að leika í endurskipulagðri LIV-deild á næsta ári. Lögmaður hans greindi frá þessu fyrir gjaldþrotadómstóli á miðvikudag.

John Beck, lögmaður Rahms, greindi frá ákvörðuninni við meðferð gjaldþrotamáls deildarinnar í New Jersey. Rahm hefði sjálfur farið yfir þá skilmála sem leikmönnum bjóðast í svonefndri LIV 2.0, þeir væru „óásættanlegir“ og hann yrði ekki með, sagði Beck, í lauslegri þýðingu. Rahm og deildin ynnu að starfslokasamningi sem ætti að liggja fyrir 15. október.
Rahm gekk til liðs við LIV í desember 2023 og vann einstaklingskeppni deildarinnar þrjú ár í röð. Hann er efstur á lista ótryggðra kröfuhafa í gjaldþrotamálinu og á inni meira en sjö milljónir dala fyrir þriðja ársfjórðung, að sögn CBS Sports. Nýja deildin, sem fjárfestingarfélagið BC Partners á að fjármagna, ætlar ekki að virða eldri samninga. Aðrir leikmenn hafa frest til 25. október til að ákveða sig.
PGA-mótaröðin hefur ekki rætt við leikmenn LIV á meðan samningsmál þeirra eru óútkljáð. Rahm hafnaði áður sérstöku endurkomutilboði mótaraðarinnar, sem Brooks Koepka þáði. Opnist engin leið til baka fyrir 2027 gæti Rahm þurft að leika heilt tímabil á DP World Tour áður en hann fær keppnisrétt vestanhafs á ný, eins og Patrick Reed gerði, segir CBS Sports.
Sergio García ræddi eigin stöðu á blaðamannafundi í Madríd sama dag. Gjaldþrotadómstóllinn hefur veitt honum lausn undan samningi sínum við LIV, samkvæmt Golf Channel, en García sagði sjálfur að samningurinn væri enn í gildi og málið ekki að fullu leyst. García, sem verður 47 ára í janúar, útilokar ekki að snúa aftur á PGA-mótaröðina, ætlar að leika oftar á DP World Tour og nefnir öldungamótaröðina PGA Tour Champions sem möguleika. Hann hefur sagt Luke Donald að hann geri allt sem hann getur til að komast í Ryder-lið Evrópu á Adare Manor á næsta ári, og takist það ekki vilji hann hjálpa liðinu á annan hátt, til dæmis sem varafyrirliði.
Opna spænska hefst á fimmtudag án Rahms, sem á von á fjórða barninu með eiginkonu sinni.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Will Zalatoris í þriðju bakaðgerðina og keppir ekki árið 2027
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Ragnhildur höggi frá niðurskurðinum í Calatayud
- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Jon Rahm laus undan LIV og má semja við hvaða mótaröð sem er
- Golf á Íslandi · GSÍNýtt
GSÍ tekur við tilnefningum um sjálfboðaliða ársins til 28. október
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur lék á 66 höggum og fór upp í 8. sæti í Álaborg
- Golf á Íslandi · VellirnirNýtt
Haukur Óskarsson lék alla 67 golfvelli GSÍ á einu sumri