Föstudagur 16. októberSíðast uppfært 16. október · kl. 21:51
Afrekskylfingar · Landsliðin

Stúlknalandsliðið endaði í 23. sæti á HM í Kanada

Íslenska stúlknalandsliðið lauk keppni í 23. sæti á heimsmeistaramóti stúlknalandsliða á Brampton-vellinum í Kanada. Embla Hrönn Hallsdóttir náði bestum árangri íslensku keppendanna.

Ritstjórn Golfsins4. október 20262 mín. lestur
Lilja Maren Jónsdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir úr GA, sem léku með stúlknalandsliðinu í Kanada. Ljósmynd: GSÍ, birt á vef Golfklúbbs Akureyrar
Lilja Maren Jónsdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir úr GA, sem léku með stúlknalandsliðinu í Kanada. Ljósmynd: GSÍ, birt á vef Golfklúbbs Akureyrar

Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða, World Junior Girls Championship, lauk á Brampton Golf Club í Ontario á laugardag, en leikið var frá 30. september til 3. október. Íslenska liðið lék samtals á 48 höggum yfir pari og töldu tvö bestu skor þess á hverjum hring.

Embla Hrönn Hallsdóttir úr GKG lék á 78, 74, 79 og 78 höggum og endaði í 56. sæti einstaklingskeppninnar, 25 höggum yfir pari. Lilja Maren Jónsdóttir úr GA varð jöfn í 57. sæti á 28 höggum yfir pari. Hún átti besta hring íslenska liðsins í mótinu þegar hún lék þriðja hringinn á 71 höggi, pari vallarins. Bryndís Eva Ágústsdóttir, einnig úr GA, endaði í 63. sæti á 31 höggi yfir pari.

Þetta var fjórða árið í röð sem Ísland sendir lið á mótið. Bryndís Eva var einnig í liðinu í fyrra, en Embla Hrönn og Lilja Maren kepptu nú í fyrsta sinn. Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, fylgdi hópnum til Kanada.

Landslið ÍslandsHM stúlknaEmbla Hrönn HallsdóttirLilja Maren JónsdóttirBryndís Eva Ágústsdóttir
Fylgstu með

Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.

Fréttabréf Golfsins

Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.

Aðeins fréttabréfið, ekkert annað. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Nýjast á Golfinu

Allt nýtt
  1. Golf á Íslandi · Klúbbarnir

    Nesklúbburinn skipar nýja barna- og unglinganefnd

  2. Afrekskylfingar · Mótaraðirnar

    Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud