Forrest með forystu í Madríd þegar seinni ráshóparnir fara af stað
Skotinn Grant Forrest lék annan hring Opna spænska meistaramótsins á 67 höggum og er á níu höggum undir pari þegar um helmingur keppenda hefur lokið leik í dag.

Grant Forrest lék á fjórum höggum undir pari á Club de Campo Villa de Madrid í morgun og er höggi á undan Joel Girrbach og landa sínum Connor Syme. Girrbach lék á 66 höggum og deilir besta hring dagsins til þessa með Frakkanum Martin Couvra og Englendingnum Matthew Jordan.
Sergio García lék á pari í dag og er samtals á fjórum höggum undir pari. Eugenio Chacarra, sem deildi forystunni eftir fyrsta hring þrátt fyrir brotna tá, fór af stað eftir hádegi og er, líkt og García, á fjórum höggum undir pari eftir þrjár holur. Tyrrell Hatton er á sjö höggum yfir pari.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn skipar nýja barna- og unglinganefnd
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Perla Sól fékk átta högg á 2. holu í Chapel Hill
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara 135,5 stigum frá keppnisrétti á LET þegar þrjú mót eru eftir
- 19. holan · HúmorNýtt
Orðabók golfvetrarins, frá vetrarflöt til hermaforgjafar
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur fékk fjóra skolla á síðustu sjö holunum í Álaborg
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud

