Eldingar stöðvuðu leik á DP World India Championship
Þrumuveður stöðvaði fyrsta hring DP World India Championship áður en 72 kylfingar höfðu hafið leik. Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hefja annan hring á Spáni í dag.

Mótsstjórnin í Delí stöðvaði leik kl. 11:04 að staðartíma (05:34 að íslenskum tíma) vegna eldinga yfir Delhi Golf Club. Þá áttu 72 kylfingar af 144 eftir að hefja leik, þeirra á meðal Patrick Reed og Anirban Lahiri. Tom McKibbin frá Norður-Írlandi og Eugenio Chacarra frá Spáni voru efstir á fimm höggum undir pari. Robert MacIntyre var höggi á eftir þeim að loknum 14 holum, Tommy Fleetwood á þremur undir pari og Rory McIlroy á tveimur. Subash Tamang, fyrsti Nepalinn á mótaröðinni, var átta höggum yfir pari eftir 11 holur.
Á Calatayud Ladies Open á Spáni er Andrea Bergsdóttir jöfn í 9. sæti á þremur undir pari og fer af 10. teig kl. 07:45. Hulda Clara Gestsdóttir er jöfn í 15. sæti á tveimur undir pari og fer út kl. 07:00. Ragnhildur Kristinsdóttir er á pari. Á lokamóti Nordic Golf League í Álaborg hefur Dagbjartur Sigurbrandsson annan hring kl. 07:55 og Hlynur Bergsson kl. 09:01. Rástímar og staða afrekskylfinganna
- Nesklúbburinn heldur í vetur í fyrsta sinn golfnámskeið fyrir leikskólabörn á Nesvöllum.
- Á Buick LPGA Shanghai var Hye-Jin Choi frá Suður-Kóreu á átta undir pari eftir 15 holur, fjórum höggum á undan Jeeno Thitikul, sem á titil að verja.
- Haraldur Franklín Magnús var varamaður á Hangzhou Open á HotelPlanner-mótaröðinni og komst ekki inn í mótið, sem hófst í nótt.
Kylfingar sem þú fylgir birtast efst á forsíðunni með nýjustu stöðu.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn skipar nýja barna- og unglinganefnd
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Perla Sól fékk átta högg á 2. holu í Chapel Hill
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara 135,5 stigum frá keppnisrétti á LET þegar þrjú mót eru eftir
- 19. holan · HúmorNýtt
Orðabók golfvetrarins, frá vetrarflöt til hermaforgjafar
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur fékk fjóra skolla á síðustu sjö holunum í Álaborg
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Hulda Clara jöfn í 14. sæti í Calatayud







