Miði á lokadag Opna breska á St Andrews kostar 190 pund
Framkvæmdastjóri R&A ver hærra miðaverð á Opna breska meistaramótið á St Andrews í júlí 2027. Hann segir að kostnaður við mótshaldið hafi aukist um fjórðung á fimm til sex árum.

Mark Darbon, framkvæmdastjóri R&A, sagði við BBC að aukin eftirspurn og hækkandi kostnaður skýrðu verðið. Miði á æfingadagana kostar 40 til 70 pund, á fimmtudag og föstudag 150 pund, á laugardag 170 pund og á sunnudag, þegar úrslitin ráðast, 190 pund.
Á Royal Birkdale í sumar kostuðu miðar á æfingadaga frá 30 pundum og á keppnisdaga frá 130 pundum. Miði á lokahringinn kostaði þá 150 pund í útdrættinum, svo sunnudagsmiðinn hækkar um rúman fjórðung milli ára.
Darbon segir að það kosti R&A nú um 25 prósentum meira að halda mótið en fyrir fimm til sex árum og að munurinn geti numið 10 til 12 milljónum punda. Þar vegi þyngst innviðir, öryggisgæsla og önnur þjónusta á mótssvæðinu. „Við verðum einfaldlega að standa undir þessum kostnaði,“ sagði Darbon, í lauslegri þýðingu.
Rúmlega milljón umsóknir bárust í miðaútdráttinn fyrir mótið á Royal Birkdale, þar sem 306.000 áhorfendur mættu og settu aðsóknarmet. R&A gerir ráð fyrir að það met falli á St Andrews. Þegar Opna breska fór þar fram í 150. sinn árið 2022 komu 290.000 áhorfendur.
Áhorfendur yngri en 16 ára fá áfram ókeypis aðgang og þeir sem eru 16–24 ára greiða lægra verð. Miðum er úthlutað með útdrætti og aðeins félagar í One Club, ókeypis aðildarkerfi R&A, geta sótt um.
Mótið, það 155. í röðinni, fer fram á Old Course í júlí 2027. Æfingadagarnir hefjast 11. júlí og lokahringurinn verður leikinn 18. júlí.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · LIV GolfNýtt
Jon Rahm laus undan LIV og má semja við hvaða mótaröð sem er
- Golf á Íslandi · GSÍNýtt
GSÍ tekur við tilnefningum um sjálfboðaliða ársins til 28. október
- Afrekskylfingar · MótaraðirnarNýtt
Dagbjartur lék á 66 höggum og fór upp í 8. sæti í Álaborg
- Golf á Íslandi · VellirnirNýtt
Haukur Óskarsson lék alla 67 golfvelli GSÍ á einu sumri
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Hye-Jin Choi með þriggja högga forystu eftir fyrsta hring í Sjanghæ
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Nesklúbburinn býður leikskólabörnum á Stubbagolf í vetur